HomeErlentAlex Pereira og Justin Gaethje komnir með staðfesta bardaga

Alex Pereira og Justin Gaethje komnir með staðfesta bardaga

UFC hafa bókað Alex Pereira í næsta bardaga þar sem hann leggur léttþungavigtarbeltið að veði gegn Magomed Ankalaev þann 13. mars næstkomandi á UFC 313. Það hefur verið mikil eftirvænting og hugleiðingar með hver næsti mótherji Pereira verður. Ekki var ljóst í hvaða þyngd hann myndi keppa en hann hefur gælt við að fara niður í millivigt og sækja titil þar eða fara í þungavigt í sömu vegferð.

Það eru þó fáir bardagamenn sem hafa unnið jafn vel fyrir sínu tækifæri á titilbardaga eins og Ankalaev hefur gert en það var ekki talið líklegt að hann gæti barist í mars vegna tímasetningar ramadan í ár sem er frá 28. febrúar til 29. mars en Ankalaev fastar yfir þann tíma ákveðnum tíma dags eftir hefðum múslíma.

Þá er UFC búið að bóka bardaga sem lofar gríðarlegu skemmtanagildi en það er bardagi Justin Gaethje gegn Dan Hooker en þeir eru báðir þekktir fyrir villtan og aggresívan bardagastíl og er nánast hægt að lofa flugeldasýningu í þessum bardaga.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið