HomeErlentTitlarnir skiptu ekki um hendur á stórbrotnu UFC 311, úrslit og myndbönd...

Titlarnir skiptu ekki um hendur á stórbrotnu UFC 311, úrslit og myndbönd í frétt

Stórbrotið UFC 311 fór fram í nótt og er af nógu að taka en kvöldið byrjaði rólega og voru margir dómaraúrskurðir framan af kvöldi en þegar leið á fóru bardagamennirnir að taka málin í sínar hendur.

Í aðalbardaga kvöldsins áttust við Islam Makhachev og Renato Moicano en Moicano steig inn á síðustu stundu. Islam sýndi í þessum bardaga að talsverður gæðamunur er á honum og næstu mönnum sem koma á eftir. Islam kláraði Moicano með Darce uppgjafartaki í fyrstu lotu.

Í næst síðasta bardaga kvöldsins áttust við Merab Dvalishvili og Umar Nurmagomedov þar sem Merab, sem er ríkjandi meistari, var hundurinn að mati veðmálasíða en Umar var talinn líklegri til að sigra. Merab sýndi það og sannaði að hann er vissulega besti bardagamaður í bantamvigtinni þar sem hann sigraði Umar örugglega með einróma dómaraákvörðun. Umar handabraut sig í bardaganum en það grefur ekki undan sigri Merab sem hélt beltinu öllum að óvörum.

Jiri Prochazka sigraði þá Jamahal Hill með tæknilegu rothöggi í þriðju lotu eftir skemmtilegan bardaga.

Jailton Almeida sigraði Serghei Spivac með tæknilegu rothöggi í fyrstu lotu, hvar endar Almeida-hraðlestin?

Reinier de Ridder sigraði Kevin Holland með uppgjafartaki í fyrstu lotu.

Raoni Barcelos sigraði þá Payton Talbott óvænt en Talbott var talinn mun líklegri af veðbönkum fyrir bardagann, með einróma dómaraákvörðun. Azamat Bekoev sigraði Xach Reese með rothöggi í fyrstu lotu.

Bogdan Guskov sigraði þá Billy Elekana með uppgjafartaki í annarri lotu.

Grant Dawson sigraði Diego Ferreira með einróma dómaraákvörðun og Dawson heldur áfram að mynda sér nafn í UFC. Ailin Perez sigraði Karol Rosa með einróma dómaraákvörðun. Muin Gafurov sigraði Rinya Nakamura með einróma dómaraákvörðun og sömuleiðis sigraði Bernado Spaj Ricky Turcios einnig með einróma dómaraákvörðun. Þá sigraði Tagir Ulanbekov hann Clayton Carpenter einnig með einróma dómaraákvörðun.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið