HomeBoxAlex Pereira vill mæta Oleksandr Usyk í hnefaleikum

Alex Pereira vill mæta Oleksandr Usyk í hnefaleikum

Alex Pereira var gestur í hlaðvarpsþættinum Jaxxon hjá Rampage Jackson nýverið og tjáði hann sig þar m.a. um áhuga á að taka hnefaleikabardaga við óumdeilanlega þungavigtar heimsmeistarann sjálfan, Oleksandr Usyk.

Pereira lét það í ljós að þetta er eitthvað sem hann virkilega vill. Hann er samningsbundinn UFC en sagði að allt væri mögulegt og nefndi að Conor hefði fengið að boxa við Mayweather á sínum tíma.

Pereira hefur boxað áður og þreytti hann frumraun sína í atvinnu hnefaleikum 2017 og sigraði þá viðureign með TKO í 3. lotu. Pereira hefur nú þegar áorkað meira en flestum gæti dreymt um í bardagaíþróttum en hann gæti með sigri á Usyk orðið heimsmeistari í þriðju íþróttinni. Hann er fyrir UFC heimsmeistari og Glory Kickboxing heimsmeistari.

Pereira heldur að hann geti gefið Usyk góðan bardaga. Margir hafa sagt að þegar kemur að hreinum hnefaleikum að Pereira yrði týndur gegn Usyk en Pereira gefur lítið fyrir þær skoðanir og nefnir að hann hafi sparrað við reynda boxara. Plinio Cruz, þjálfari Pereira, bætti þá við að hann hafi trú á sínum manni. Hann hafi látið hann sparra við þungavigtarboxara á hæsta stigi og Pereira hafi staðið sig mjög vel gegn þeim en vildi ekki nefna nein nöfn.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið