Árið 2014 var skemmtilegt ár í bardagaíþróttum bæði hér heima og erlendis. Við fengum aðila frá helstu bardagaklúbbum á Íslandi til að gera upp árið 2014. Ingþór Örn Valdimarsson yfirþjálfari Fenris á Akureyri gerir upp árið.
Hvað fannst þér standa upp úr á árinu í MMA á heimsvísu?
Mér fannst ekkert sérstak standa upp úr á árinu.
Hvað fannst þér standa upp úr á árinu í bardagaíþróttum á Íslandi?
Að Gunnar Nelson skuli bera UFC „event“ í Svíþjóð var sennilega stærsta íslenska „útrásin“. Annars fannst mér standa upp úr aukning kvenna á Íslandsmeistaramótinu í BJJ. Algjörlega í takt við það sem við erum að upplifa í BJJ hérna fyrir norðan, að sífellt fleiri stelpur eru að byrja æfa BJJ hjá okkur.
Hvernig var árið hjá ykkur?
Árið var frábært! Við fluttum í nýtt, betra og stærra húsnæði einmitt síðustu áramót í Austursíðu og vorum að fá „samþykki“ á stækkun hjá okkur í janúar þar sem við ætlum að bjóða upp á enn betri stundaskrá og þjónustu. Í nýja bilinu verður MMA búrið okkar og jiu-jitsu völlurinn okkar og mætti næstum segja að við værum að tvöfalda okkur á milli ára.
- Tappvarpið #141: Frábær sigur Gunnars og UFC 286 uppgjör - March 22, 2023
- Gunnar með flest uppgjafartök í sögu veltivigtarinnar - March 19, 2023
- Gunnar Nelson með sigur í 1. lotu - March 18, 2023