Það styttist óðfluga í stórviðburðinn á Ásbrú – Glacier Fight Night! Átta bardaga MMA veisla! Það má eiga von á hrikalega skemmtilegu kvöldi enda býður Bjarki Þór mótshaldari upp á frábært bland af annars vegar ungum og efnilegum strákum og hins vegar þeim reynslumeiri. Aron Kveinsson er vissulega einn af þeim reynslumeiri en hann mætir Englendingnum Samuel Hewitt þann 15. nóvember.
Uppselt er á viðburðinn eins og er en við vonumst til þess að fá fleiri miða í sölu þegar salurinn er tilbúinn. Einnig verður þetta sögulega MMA kvöld í beinni útsendingu í MiniGarðinum.
Feginn að geta barist heima?
Aron Kevinsson er með 5 sigra og 5 töp á ferilskránni. Drengurinn elskar að berjast og ætti að vera ansi feginn að berjast í heimalandinu eftir að hafa þurft að ferðast út í tíu skipti til að stiga inn í búrið. Aron Kevinsson hefur skapað mikið af skemmtilegum augnablikum á ferlinum og passar sem flís við rass á Glacier Fight Night þann 15. nóvember.
Aron mætti síðast Ryan Shaw á Caged Steel 38 í bardaga sem Aroni var boðið örfáum klukkustundum áður en hann gekk inni í búrið. Þó að bardaginn hafi ekki farið honum í vil sannaði Aron að hann er alltaf tilbúinn í bardaga og elskar að berjast. Aron hafði unnið síðustu tvo bardaga fyrir viðureignina gegn Ryan Shaw og varð Caged Steel English Super Lightweight meistari á þeim tíma! Hlekkur á bardagann hér fyrir neðan.
Aron „Mr. Flash“ er með fjólublátt belti í Brazilian Jiu Jitsu og hefur verið nokkuð duglegur að keppa í glímu hérna heimafyrir, síðast á Reykjavík Open 25. október en hann vann til verðlauna síðast árið 2023 þegar hann tók bronsið á Íslandsmeistaramótinu í Gi. Þrátt fyrir að vera hæfileikaríkur í glímu er honum best lýst sem well rounded bardagamanni. Aron berst oft með frekar lágan base og hreyfir sig mikið inn og út gegn andstæðingnum sínum.
Andstæðingurinn hans Arons á laugardaginn er Englendingurinn og Leedsarinn Samuel Hewitts. Samuel er 28 ára gamall og er með 7 bardaga á ferilskránni þar af fjóra sigra og þrjú töp. Hewitts barðist síðast í ágúst gegn Cole Dollar upp á AFC veltivigtarbeltið. Hewitt var stoppaður í fyrstu lotu en við sáum í þeim bardaga að Hewitts er vel vaxinn, þrekinn og líkamlega sterkur. Hann er flinkur glímumaður og höggþungur en í bardaganum gegn Dollar lét hann grípa sig í lélegri fótastöðu og át þungan hægri krók sem batt enda á viðureignina. Það er ritað í skýin að Aron og Hewitt gætu átt virkilega skemmtileg samskipti í gólfinu en leið Arons að sigrinum er líklega í gegnum góðar fótahreyfingar og skörp högg.






