HomeBoxBakole stígur inn fyrir Dubois gegn Parker, Kolbeinn Kristinsson spáir í spilin

Bakole stígur inn fyrir Dubois gegn Parker, Kolbeinn Kristinsson spáir í spilin

Daniel Dubois hefur dregið sig úr bardagagnum gegn Joseph Parker um IBF þungavigtar heimsmeistaratitilinn vegna veikinda. Inn í hans stað kemur Martin Bakole sem gæti reynst Parker erfiður komandi inn með stuttum fyrirvara.

Bardaginn fer fram í Riyadh, Saudi Arabíu á morgun (laugardag) þar sem Artur Beterbiev og Dmitry Bivol eigast við í annað skiptið fyrir sameinaðan léttþungavigtar heimsmeistaratitilinn í aðalbardaga kvöldsins. Dubois stöðvaði Anthony Joshua eftir 5 lotur á Wembley í september í fyrra og stóð til að hann myndi reyna að verja IBF titilinn sinn í annað skiptið á morgun. Í staðinn mun Martin Bakole fá tækifæri gegn Joseph Parker en IBF titillinn verður því miður ekki í húfi í þessum bardaga.

Hinn 31 árs gamli Bakole hefur aðeins tapað einu sinni í 22 bardögum. Í fyrra vann hann sinn sterkasta sigur þegar hann rotaði hinn áður ósigraða Jared Anderson í 5. lotu. Bakole æfir í Skotlandi en er frá Lýðveldi Kongó. Joseph Parker, sem kemur frá Nýja-Sjálandi, er tveimur árum eldri og hefur barist 38 atvinnumannabardaga og sigrað 35 af þeim. Hann hélt WBO þungavigtartitlinum frá 2016 til 2018.

Kolbeinn Kristinsson atvinnuboxari hefur æft með báðum mönnum og telur hann báða menn eiga jafn góðar líkur á sigri í þessum bardaga. Hann segir að Bakole sé jafnvel erfiðari bardagi fyrir Parker en Dubois hefði verið en spáir þó Parker sigri. Kolbeinn sagði að ef bardaginn fer yfir 6 lotur gæti Bakole verið í vandræðum. “Formið á Bakole hefur verið spurningamerki en síðustu bardagar hafa ekki farið yfir 6 lotur”. Í eina tapinu á ferlinum var hann kláraður í 10. lotu, alveg sprunginn að sögn Kolbeins. Kolbeinn spáir að Parker vinni með dómaraákvörðun og alla vega 4 lotu forskoti eða þá að Bakole hætti í horninu milli lotna 8 og 12.

Parker sagði í sambandi við nýja andstæðinginn að þetta væri allt partur af hnefaleikum og partur af ferðalaginu. “Eitt tækifæri hverfur, og annað kemur upp”. Hann sagði einnig að hann vonist til að fá tækifærið á að mæta Dubois seinna því hann vilji verða heimsmeistari.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið