Conor McGregor var mættur á blaðamannafund til þess að kynna bardagakvöld Bare Knuckle Fighting Championship sem fer fram í Flórens, Ítalíu 26. maí nk. þar sem Chris Camozzi og Lorenzo Hunt mætast í annað skiptið. Conor fullyrti þar að við munum fá að sjá hann berjast í BKFC.
Conor McGregor, sem er einn af meðeigendum BKFC, er ennþá samningsbundinn UFC en margir eru farnir að gefa upp vonina um að sjá hann berjast aftur þar eftir að hann dróg sig úr keppni vegna brotinnar táar fyrir bardagann gegn Michael Chandler sem átti að fara fram 29. júní í fyrra.
McGregor sagði: “Stríðsmannsandinn brennur sterkt innra með mér. Ef þið haldið að ég sé hérna uppi að halda ræður og leiða þessa menn inn í orrustu og muni ekki stíga þar inn sjálfur, hugsið ykkur um aftur! Conor McGregor mun berjast í Bare Knuckle Fighting Championship” og sagði hann svo að við gætum treyst á orðin hans.
Conor nefndi svo Mike Perry, Jeremy Stephens og Eddie Alvarez sem mögulega andstæðinga og sagðist vera með augun á annað hvort léttvigtar- eða veltivigtartitlunum.
“Ég vil heimsmeistaratitil í þessum samtökum” sagði McGregor. “Það er þýðingarmikið belti til þess að halda á sínum ferli. Enginn frá hnefaleikum til blandaðra bardagalista getur sagt neitt neikvætt um Bare Knuckle Fighting Championship heimsmeistara”.
Conor gaf svo að lokum í skyn að BKFC væri nálægt því að koma með tilkynningu um Fedor Emelianenko og hafa netheimar logað síðan þá sem er skiljanlegt þar sem Fedor er af mörgum talinn einn besti MMA bardagamaður allra tíma. Hann hefur svo verið orðaður við fyrrverandi UFC bardagamanninn Ben Rothwell fyrir titilbardaga í þungavigtinni.






