Seinni viðureign Artur Beterbiev og Dmitry Bivol var að ljúka rétt í þessu. Bardaginn var algjör flugeldasýning alveg í gegn og endaði á meirihluta ákvörðun til Dmitry Bivol. Einn dómari skoraði bardagann sem jafntefli.
Fyrsta lotan var jöfn, Beterbiev sótti að Bivol eins og gert var ráð fyrir og stillti hraðann. Beterbiev var duglegur á fremri hendinni með hæga en stöðuga pressu. Bivol svaraði þó vel fyrir sig. Lotan hefði alveg getað fallið báðum megin
Það var ákafari pressa frá Beterbiev strax frá byrjun 2. Lotu. Góðar stungur og hægrihandarhögg i skrokkin. Bivol var samt skarpur með góðar mótsóknir og valdi höggin sín vel, önnur mjög jöfn lota. Sama dýnamík hélt áfram í 3. lotu og Bivol bakkaði undan Beterbiev þegar hann sótti að honum en var duglegur að slá um leið og Beterbiev slakaði á í hálfa sekúndu. Fyrstu þrjár loturnar voru allar frekar jafnar en duttu líklega Bivol megin.
Í 4. lotunni er Beterbiev búinn að finna taktinn sinn mun betur og pressar harðar á Bivol. Eftir 3 nokkuð jafnar lotur var þetta byrjað að líta út fyrir að vera frekar erfitt fyrir Bivol. Fyrsta afgerandi lota bardagans sem Beterbiev tekur. Beterbiev byrjaði og endaði svo 5. lotuna mjög sterkt en Bivol átti sín augnablik og átti eitt rosalegt hreint högg, bein hægri beint á hökuna á Beterbiev.
Bivol fór að reyna að standa meira með Beterbiev í miðjunni í 6. lotu en græddi ekkert endilega mikið á því. Beterbiev átti mjög góð augnablik í lotunni. Beterbiev virtist góður að byrja og enda loturnar sterkt og tekur líklega 4.-6. lotu en 7. lota var ákveðinn vendipunktur í bardaganum þegar Bivol nær að standast pressuna betur og standa meira með honum í miðjunni, nokkuð jöfn lota sem fór þó líklega til Bivol.
Beterbiev virtist ekki geta haldið áfram sömu pressu í 8. lotunni og Bivol fór að setja saman flottar fléttur. Beterbiev sýndi þó mikla áræðni strax í byrjun 9. lotu en Bivol svaraði vel fyrir sig og maður fór að sjá að Bivol var meira farinn að sækja heldur en að slá til að stöðva sóknirnar frá Beterbiev eins og raunin var í fyrri lotum.
Það hafði aðeins dregið úr Beterbiev en hann kom sterkur út í 10. lotu og náði að gefa aðeins meira í aftur. Bivol svaraði samt oft vel fyrir sig og sló oft 3-4 högg í einu og lenti í góðu hlutfalli. Nokkuð jöfn lota sem mætti gefa á Beterbiev eftir nokkrar sterkar frá Bivol.
Ákefðin hélt áfram inn í 11. lotu frá Beterbiev en Bivol valdi skotin sín betur og var nákvæmari. Á einum tímapunkti sló hann þó 7-8 högga fléttu. Beterbiev barðist alla 12. og loka lotuna eins og hann þyrfti á rothöggi að halda eða a.m.k. að sigra lotuna á meðan Bivol barðist eins og hann væri yfir og þyrfti bara að lifa lotuna af til að vinna.
Heilt yfir var þetta rosalega góður bardagi milli tveggja úrvalsboxara og þar sem staðan er núna 1-1 getum við byrjað að hlakka til þríleiksins.





