Thursday, May 2, 2024
HomeForsíðaBjarni tapaði fyrir Búlgaranum

Bjarni tapaði fyrir Búlgaranum

bjarni k mjölnirBjarni Kristjánsson er úr leik á Heimsmeistaramótinu í MMA sem fram fer um þessar mundir. Bjarni tapaði fyrir Búlgaranum Tencho Karaenev í Las Vegas í dag.

Fyrir bardagann hafði Bjarni unnið tvo bardaga með hengingu. Bjarni sigraði Bretann James Harrison með hengingu á þriðjudaginn og Rússann Igramudin Ashuraliev einnig með hengingu í gær.

Í dag mætti hann hins vegar Tencho Karaenev í 8-manna úrslitum. Samkvæmt Twitter aðgangi My Next Match tapaði Bjarni eftir einróma dómaraákvörðun.

Þetta er í annað sinn sem Tencho Karaenev slær út Íslending en hann sigraði Egil Øydvin Hjördísarson á Evrópumótinu í fyrra.

Bjarni er því úr leik og mun ekki berjast fleiri bardaga á mótinu. Bjarni getur vel við unað eftir mótið og kemur heim reynslunni ríkari.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular