Bo Nickal heldur úti youtube-síðu þar sem hann setur inn efni en í nýlegu myndbandi uppljóstrar Nickal um næsta titilbardaga Ilia Topuria. Kemur þar fram að Ilia Topuria muni verja fjaðurvigtarbelti sitt gegn Alexander Volkanovski en þeir áttust við í febrúar 2024 þar sem Topuria sigraði með rohöggi í fyrstu lotu. Þegar meðstjórnandi Nickal spurði hvort þetta væri staðfest því UFC væri ekki búið að tilkynna bardagana sagði Nickal „ég veit ekki hvernig staðan er á staðfestingu frá UFC en ég veit fyrir víst að þetta er að gerast“.
Nickal gæti fengið orð í eyra frá Dana White eða Hunter Campbell þar sem þeir vilja stjórna tilkynningum um stóra bardaga og geta þá samtvinnað markaðssetningu bardaganna sem eru fram undan. Nickal sagði einnig að hann væri gáttaður á því að bardaginn færi fram því hann skildi ekki afhverju Topuria þurfi að gefa Volkanovski annan bardaga og bætti við að hann sæi ekki hvernig Volkanovski ætti að sigra. Nickal sagðist þá vilja koma sér að á kvöldinu vonandi gæti hann barist snemma á aðalhluta kvöldsins. Hvernig sem það fer þá eru þetta risastór tíðindi en Nickal gaf í skyn að þetta yrði aðalbardagi kvöldsins á UFC 314 en Volkanovski á harma að hefna eftir fyrri bardaga hans og Topuria.