Brock Lesnar mun mæta Mark Hunt á UFC 200 í sumar. Þetta var staðfest í þættinum SportsCenter á ESPN fyrir skömmu.
Brock Lesnar (5-3) snýr aftur í búrið í sumar eftir nokkurra ára fjarveru. Lesnar barðist síðast við Alistair Overeem í desember 2011 þar sem hann tapaði eftir tæknilegt rothögg í fyrstu lotu. Hinn 38 ára Lesnar var þungavigtarmeistari UFC frá 2008 til 2010. Lesnar er enn undir samningi við WWE fjölbragðaglímuna og verður þetta eini MMA bardaginn hans í bili eða þar til samningur hans við WWE rennur út.
Mark Hunt hefur sigrað tvo bardaga í röð með rothöggi og er einn allra vinsælasti bardagamaður UFC meðal harðkjarna aðdáenda.
UFC 200 fer fram þann 9. júlí þar sem þeir Jon Jones og Daniel Cormier berjast í aðalbardaga kvöldsins. Frankie Edgar mætir Jose Aldo um bráðabirgðartitilinn í fjaðurvigtinni sama kvöld og þá mun Meisha Tate verja bantamvigtarbeltið sitt í fyrsta sinn gegn Amanda Nunes.
Brock Lesnar var í aðalbardaganum á UFC 100 og rotaði þá Frank Mir í 2. lotu. UFC 100 er söluhæsta UFC kvöld allra tíma en UFC 200 gæti bætt það met.