Darren Till kom sér í vandræði á Kanarí eyjum á dögunum ef marka má ensku blöðin. Till er sagður hafa rústað hótelherbergi og svo flúið á stolnum leigubíl.
Darren Till var handtekinn á Tenerife samkvæmt Daily Mail en Till var handtekinn ásamt fjórum öðrum Bretum.
Samkvæmt frétt Daily Mail var Till og vinum hans hent af hóteli fyrir að brjóta húsgögn og tæma slökkvitæki á hótelinu. Þeir reyndu að komast á annað hótel en var neitað inngöngu þar. Þegar leigubíll sótti þá stólu þeir bílnum á meðan bílstjórinn setti farangur þeirra í skottið. Hópurinn var skömmu síðar handtekinn snemma fimmtudagsmorgun.
Páskafríið hans Till hefur því farið aðeins úr böndunum en Till hefur tapað síðustu tveimur bardögum sínum.