USADA getur bankað upp á hvenær sem er og tekið bardagamenn UFC í lyfjapróf alla daga ársins. Því fékk Demetrious Johnson að kynnast á dögunum þegar hann var tekinn í lyfjapróf í miðjum verslunarleiðangri.
Fluguvigtarmeistarinn Demetrious Johnson varði beltið sitt gegn Tim Elliot fyrr í mánuðinum. Á dögunum var Johnson í matvörubúðinni að kaupa sér smá öl þegar hann fékk símtal frá USADA sem sér um öll lyfjamál UFC.
USADA var að leita að meistaranum og bað hann um að halda kyrru fyrir í búðinni.
nothin like USADA deciding to join me on my date night with @mightywife ? pic.twitter.com/d5qzLrlszX
— Demetrious Johnson (@MightyMouseUFC) December 19, 2016