HomeBJJEgill Blöndal vann gull á Norðurlandamótinu í Júdó eftir glæsilega endurkomu

Egill Blöndal vann gull á Norðurlandamótinu í Júdó eftir glæsilega endurkomu

Norðurlandamótið í Júdó fór fram í Finnlandi helgina 13. júní þar sem Ísland átti öfluga þátttöku. Um 22 keppendur fóru út ásamt þjálfurum og öðru fylgdarliði og kepptu fyrir Íslands hönd í U18-, U21- og fullorðinsflokkum.

Stærstu tíðindin komu í -100 kg flokki fullorðna þar sem Egill Blöndal úr Ungmennafélagi Selfoss sneri aftur á júdómottuna með eftirminnilegum hætti. Hann vann allar sínar viðureignir á köstum og tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn, en síðast varð hann Norðurlandameistari árið 2023. Það var jafnframt síðasta skiptið sem hann keppti erlendis í Júdó.

Undanfarið hefur Egill verið sýnilegri á sviði Brasilísks Jiu-Jitsu en Júdós og hefur hann æft og keppt undir merkjum Berserkja BJJ. Nýlega tók hann þátt í Stockton Grand Prix-mótinu sem haldið var í Tjarnarbíói þar sem hann mætti Mikael Aclipen í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Aclipen fór síðar alla leið og stóð uppi sem sigurvegari mótsins.

Gullverðlaun Egils voru þau einu sem Ísland vann í fullorðinsflokki á Norðurlandamótinu í ár. Aðalsteinn Björnsson úr JR vann brons í sterku -90 kg flokki og Weronika Komendera bætti við silfurverðlaunum í -52 kg.

Á seinni keppnisdegi var keppt í U21-flokki þar sem íslensku keppendurnir héldu áfram að ná góðum árangri. Aðalsteinn Björnsson vann þar gull í -90 kg, Viktor Kristmundsson stóð uppi sem sigurvegari í -100 kg, Helena Bjarnadóttir vann brons í -70 kg og Arnar Arnarsson tryggði sér brons í +100 kg.

Íslenski hópurinn skilaði því heim alls sjö verðlaunum af Norðurlandamótinu, þar af þremur gullverðlaunum, einu silfri og þremur bronsverðlaunum.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið