HomeBoxMihail og Ronald Bjarki kepptu fyrir Íslands hönd á Brandenburg Cup

Mihail og Ronald Bjarki kepptu fyrir Íslands hönd á Brandenburg Cup

Tveir keppendur í íslenska hnefaleikalandsliðinu eru staddir á mótinu Brandenburg Cup í Þýskalandi sem er það allra sterkasta með EM og HM í flokki U19 ára. Þeir Mihail Fedorets -70kg og Ronald Bjarki Mánason -50 fóru fyrir Ísland og hafa báðir lokið keppni.

Mihail dróst gegn þjóðverjanum Leo Efrosi og keppti á fyrsta keppnisdegi, bardaginn var mjög hraður og skiptust þeir báðir mikið á höggum en fyrsta lotan fór öll til Þjóðverjans. Mihail kom mun sterkari inn í aðra lotu og náði að færa einn dómara á sína hlið þegar liðinu þótti hann gera meira en nóg til að snúa öllum þeirra. Í þriðju lotu gekk Mihail jafn vel og eftir viðvaranir í garð Þjóðverjans var á endanum dregið stig af honum sem hleypti bardaganum í loft og gerði það að verkum að þrír af fimm dómurum voru með jafna stigagjöf að bardaga loknum og í þeirri stöðu þarf að velja “eftirlætis” boxara og völdu þeir Þjóðverjann og því sigurinn til hans. Virkilega vel gert og sýnir greinilega að Mihail er á réttum stað til að standa í þessu háa reynslustigi og hefði bardaginn hæglega getað dottið báðum megin.

Ronald fékk erfiðasta drátt sem í boði var í fyrsta bardaga, Georgíumanninn Shalva Beridze sem er skráður númer 8 af öllum hnefaleikamönnum í heiminum. Ronald eða Ronni eins og hann er kallaður byrjaði mjög vel en átti erfitt með að eiga svör við þeim reynslumikla Beridze sem hélt fjarlægðinni einstaklega vel og okkar maður að reyna að finna svör allan tímann sem gekk misvel. Lota tvö var eins og brekkan orðin mikil. Þriðja lota var besta lota Ronna en að endingu sigraði Georgíumaðurinn einróma og Ronni því úr leik en fer með virkilega dýrmæta reynslu í farteskinu fyrir komandi verkefni.

Ronni hefur sjaldan tapað, þekkir það illa og er því staðráðinn að taka þetta nesti með til að snúa þessu við á næsta mót sem er í lok ágúst.

“Stoltið er virkilega mikið af okkar keppendum og höldum við áfram að láta ICELAND sjást og ná árangri sem aldrei áður á erlendum stórmótum” sagði Davíð Rúnar Bjarnason landsliðsþjálfari.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið