HomeBoxEmin Kadri berst í Kaupmannahöfn – Spennandi ár framundan

Emin Kadri berst í Kaupmannahöfn – Spennandi ár framundan

Emin Kadri Eminson er nýjasta viðbót Íslendinga í atvinnumannahnefaleika. Emin byrjaði atvinnumannaferilinn sterk og tókst að setja saman 3 – 0 bardagamet á einu og hálfu ári eftir að hann þreytti frumraun sína í Tijuana, Mexíkó 20. september 2024.

Stefnan var sett á bardagakvöldið í Gamla bíói þann 10. apríl en eins og frægt er orðið þurfti Kolbeinn Kristinsson að draga sig úr aðalbardaga kvöldsins vegna meiðsla í hné og var því ákveðið að fresta kvöldinu þar til í haust. Nákvæm dagsetning hefur ekki enn fengist staðfest.

Stefnan hjá Emin er núna sett á Danmörku og munu félagarnir sem áttu að berjast í Gamla Bíói núna berjast saman á Danish Fight Night í Kaupmannahöfn. Emin Kadri sagði í samtali við MMA Fréttir að frestunin á fyrsta hnefaleikakvöldi Íslandssögunnar hafi verið virkilega svekkjandi og reynt á andlegu hliðina og kortesólið. Hann er þó mjög brattur og jákvæður í dag og undirstrikar að hann hafi verið tilbúinn áður og er hann vissulega mun tilbúnari núna. Til að bæta upp fyrir neikvæðnina sem fylgdi frestuninni skellti Emin sér til Spánar til að komast í smá sól og sagði að það hefði breytt öllu og sé hann endurnærður eftir sólina og tilbúinn í bardagann í Danmörku.

Andstæðingurinn að þessu sinni er Erik Mato (1 – 4) frá Ungverjalandi. Sá er 23 ára gamall og er með einn sigur á skránni eftir 5 bardaga. Sigurinn kom með TKO í annarri lotu gegn fremur ósannfærandi andstæðingi. Það má staðhæfa að þetta sé bardagi sem Emin Kadri á að vinna og taka mikla reynslu úr. En eins og hnefaleikaaðdáendur vita þá er ekkert gefins í hnefaleikaheiminum og auðvelt að misstiga sig.

Bardaginn gegn Erik Mato er ekki eini bardaginn sem Emin Kadri er búinn að raða upp. Emin mun halda út fyrir landssteinana í lok sumars og halda til Serbíu þar sem hans bíður bardagi í Belgrad í lok ágúst.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið