Notandi á vefsíðunni The Underground setti inn áhugaverðan þráð í vikunni sem snýr að því hvort Íslandsvinurinn Conor McGregor hafi mögulega stolið stílnum sínum frá kanadísku fyrirsætunni Josh Mario John.
Slíkur stuldur kallast vestanhafst ‘swagger jacking’ og vísar til þess þegar menn stela útliti eða háttarlagi frá öðrum aðila. Módelið kanadíska hefur borið sín húðflúr lengur en McGregor og finnst mörgum þau full svipuð.
Það eru vissulega nokkur líkindi á milli Conor McGregor og Josh, þá helst þegar það kemur að húðflúrum þeirra. En dæmi nú hver fyrir sig.