Frankie Edgar er kominn með sinn næsta bardaga rúmum tveimur vikum eftir að hafa verið rotaður af Brian Ortega. Frankie Edgar mætir Cub Swanson á UFC bardagakvöldinu í Atlantic City þann 21. apríl.
Frankie Edgar var rotaður í 1. lotu af Brian Ortega á UFC 222 þann 3. mars. Þetta var hans fyrsta tap eftir rothögg á ferlinum og ætlar Edgar greinilega að drífa sig aftur af stað.
Cub Swanson tapaði líka síðast fyrir Brian Ortega en það var eftir hengingu í desember í fyrra. Það var síðasti bardaginn hans á samningi hans við UFC og var talið að Swanson væri jafnvel á leið úr UFC. Hann hefur greinilega skrifað undir nýjan samning og mætir Frankie Edgar. Þetta verður í annað sinn sem þeir mætast en Frankie Edgar gjörsigraði Cub Swanson í nóvember 2014.
Bardagakvöldið fer fram þann 21. apríl en þeir Kevin Lee og Edson Barboza mætast í aðalbardaga kvöldsins.