Fyrsti blaðamannafundurinn fyrir boxbardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor er í kvöld. Blaðamannafundurinn fer fram í Los Angeles og hefst kl 21 á íslenskum tíma.
Þetta er fyrsti blaðamannafundurinn af fjórum fyrir næstu fjóra daga. Eins og áður segir fer blaðamannafundurinn í Los Angeles í kvöld en á morgun verða þeir í Toronto, New York á fimmtudaginn og svo loks á Wembley í London á föstudaginn.
Boxbardagi þeirra fer fram þann 26. ágúst í T-Mobile Arena í Las Vegas.