Gunnar Nelson mun að öllum líkindum berjast á UFC bardagakvöldinu í London í mars. Claudio Silva hefur greint frá því að hann mæti Gunnari í mars.
UFC staðfesti nýlega bardagakvöldið í London þann 19. mars. UFC hefur ekki staðfest bardaga fyrir Gunnar en Claudio Silva hefur sjálfur sagt að hann mæti Gunnari í mars. MMA Junkie hefur sömuleiðist greint frá bardaganum
Claudio Silva er 39 ára Brasilíumaður sem hefur verið í UFC frá 2014. Silva er 5-2 á ferli sínum í UFC og hefur tapað tveimur bardögum í röð.
Gunnar Nelson skrifaði nýlega undir nýjan samning við UFC. Hann hefur ekki barist síðan í september 2019 en reikna má með að Gunnar berjist í London þann 19. mars.