HomeInnlentHákon Arnórsson með sinn fjórða sigur á Glacier Fight Night

Hákon Arnórsson með sinn fjórða sigur á Glacier Fight Night

Mynd frá @helgith.iceland.photography

Mosfellingurinn stolti og MMA ungstyrnið Hákon Arnórsson sótti sinn fjórða sigur á ferlinum á Glacier Fight Night sem fram fór á Ásbrú á laugardaginn var. Eins og flestum er kunnugt var þetta sögulegur viðburður sem hóf nýjan kafla í sögu MMA á Íslandi.

Hákon mætti Norðmanninum Eric Nordin í aðalbardaga kvöldsins. Bardaginn fór allar þrjár loturnar en Hákon fann taktinn snemma og tók yfir bardagann á fyrstu mínútu. Viðureignin fór að mestu fram standandi og virstust keppendurnir ákveðnir í því að boxa eins mikið og þeir mögulega gætu.

Um tíma virtist Hákon líklegur til að klára bardagann í fyrstu lotu og gaf svo áhorfendum aftur von um að klára bardagann í annarri lotu en Hákon var passasamur og ætlaði greinilega ekki að láta veiða sig út í vitleysu og keyra bensíntankinn alveg í þrot. Hann hélt því ró sinni og einbeitti sér að tæknilegum bardaga frekar en að fara all in í von um að klára bardagann á ákveðnum tímapunkti og eiga svo erfitt uppdráttar seinna ef það tækist ekki.

Eric Nordin er fínasti striker og lenti nokkrum góðum höggum gegn heimamanninum. Undir lok annarrar lotu byrjaði Nordin að leita í glímuna og hóta fellum. Honum tókst að ná Hákoni í gólfið en tókst engan veginn að halda honum þar. Hákon var virkilega flinkur að koma sér upp á fætur aftur og virtist Nordin aldrei eiga möguleika á því að breyta bardaganum í glímukeppni. Þar með hélt bardaginn sínum gangi nær allan tímann og var tæknilega betri striking geta Hákons allsráðandi.

Hákon sigraði bardagann með einróma dómaraákvörðun eftir þrjár lotur. Í viðtalinu eftir bardagann þakkaði hann Nordin fyrir góðan bardaga og sagði að hann væri sá fyrsti til að gefa honum almennilegan hausverk.

Hákon er núna 4 – 2 sem áhugamaður í MMA og stefnir óðfluga á atvinnumennskuna. Hákon hefur lært mikið og þroskast sem bardagamaður frá síðasta tapi og er klárlega ein af okkar björtustu vonarstjörnum í íþróttinni.

Viðtal við Hákon eftir bardagann er inn á Instagram síðu MMA Frétta.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img
spot_img

Mest Lesið