Stutt heimildamynd um Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur, sem er í keppnisliði Mjölnis og er fyrsta konan frá Íslandi sem keppir í MMA.
Í myndinni segir hún frá því hvernig hún byrjaði að æfa, hvers vegna hún berst og hvað hún fær út úr því að æfa MMA.Hún ræðir líka stöðu kvenna í íþróttinni.