Þann 21. febrúar fer fram hnefaleikamót í húsakynnum Hnefaleikafélags Kópavogs og VBC MMA á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Nýjar reglur frá alþjóða hnefaleikasambandinu AIBA munu taka gildi í fyrsta skipti á Íslandi á mótinu.
Breytingarnar bera í för með sér að keppendur 19 ára og eldri munu keppa án höfuðhlífa ásamt því að stigakerfi dómara hefur verið breytt en nú fá keppendur 8-10 stig fyrir hverja lotu. Áður fyrr voru högg talin og úrskurðaður sigurvegari eftir fjölda högga. Nú verður horft meira til hæfni keppanda en högg munu þó enn telja líkt og er í atvinnumannahnefaleikum. Samkvæmt reglunum verður einnig breyting á hönskum en áður fyrr voru notaðir tíu únsu hanskar en nú verða notaðir 12 únsu hanskar.
Margir af fremstu hnefaleikaköppum Íslands taka þátt ásamt fimm hnefaleikaköppum frá Grænlandi. Áætlað eru að 12 bardagar fari fram og opnar húsið stundvíslega klukkan 18:00 og hefst keppni 19:00.
Róbert Bryde |
HFK |
62kg |
VS |
Aninguaq Eigaard |
Nuuk |
60kg |
||
Gísli Kvaran |
HAK |
69kg |
VS |
Muku Jessen |
Nuuk |
69kg |
||
Marinó Elí |
HAK |
69kg |
VS |
Kristján TNT Ingvasson |
Æsir |
69kg |
||
Árni Geir Valgeirsson |
HFH |
81kg |
VS |
Stefán Örn Hannesson |
Æsir |
81kg |
||
Maksymilian Sobiecki |
HFK |
64kg |
VS |
Pavel Uscilowski |
HR |
64kg |
||
Jafet Örn Þorsteinsson |
HFK |
75kg |
VS |
Jakob Möller |
Nuuk |
75kg |
||
Margrét Þorsteinsdóttir |
HFK |
VS |
Ikitannguaq Jensen |
Nuuk |
||||
Haukur Borg |
HFK |
81kg |
VS |
Tómas Ólafsson |
HFR |
81kg |
||
Karen Ósk Björnsdóttir |
HFK |
64kg |
VS |
Erla Guðrún Hjartardóttir |
HR |
64kg |
||
Birgir Þór Stefánsson |
HFK |
81kg |
VS |
Magnús Snæbjörnsson |
Æsir |
81kg |
||
Þórður Bjarkar Árelíusson |
HFK |
69kg |
VS |
Angulluk Thomassen |
Nuuk |
69kg |