Friday, March 29, 2024
HomeErlentHolly Holm og Germaine de Randamie berjast um fjaðurvigtartitil kvenna - Cyborg...

Holly Holm og Germaine de Randamie berjast um fjaðurvigtartitil kvenna – Cyborg á hliðarlínunni

UFC hefur formlega sett á laggirnar fjaðurvigt kvenna í UFC. Þær Holly Holm og Germaine de Randamie munu berjast um fjaðurvigtartitil kvenna á UFC 208 þann 11. febrúar á meðan Cris ‘Cyborg’ Justino situr á hliðarlínunni.

Þetta kemur verulega á óvart enda eru flestir sammála um að Cyborg sé besta fjaðurvigtarkona heims og hefur verið það í mörg ár. Hún treysti sér hins vegar ekki til að keppa í febrúar þar sem hún er enn að jafna sig eftir erfiðan niðurskurð í 140 pund í september. Cyborg var boðið að berjast um fjaðurvigtartitilinn í febrúar en hafnaði þeim bardögum en sagðist vera tilbúin að berjast aftur í mars.

Allt í einu er UFC að flýta sér að koma fjaðurvigt kvenna af stað eftir að bardagasamtökin voru lengi á þeirri skoðun að ekki væru nægilega margar konur í fjaðurvigt til að búa til nýjan þyngdarflokk. Þetta er í besta falli undarlegt enda enginn vafi á því að Cyborg sé sú besta í fjaðurvigt kvenna í heiminum.

Titilbardaginn fer fram á UFC 208 Barclays Center í Brooklyn í New York. Holly Holm hefur tapað tveimur bardögum í röð síðan hún vann Rondu Rousey á UFC 193 í fyrra. Þetta verður fyrsti bardagi hennar í fjaðurvigt.

Hin hollenska Germaine de Randamie keppti í fjaðurvigt kvenna í Strikeforce en hefur keppt í bantamvigt í UFC þar sem hún er með þrjá sigra og eitt tap. Hún er með mikla reynslu úr sparkboxi og ætti þetta því að verða hörku bardagi.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular