Ansi skemmtilegur þráður leit dagsins ljós á Sherdog spjallborðinu fyrir skömmu. Þar kepptust spjallverjar við að setja Nick Diaz í hin ýmsu störf í UFC.
Margir fyrrum bardagamenn UFC hafa fengið ýmis störf hjá bardagasamtökunum eftir að ferli þeirra lýkur. Matt Hughes, Chuck Liddell og Forrest Griffin starfa allir hjá UFC í dag og þeir Kenny Florian og Brian Stann sinna störfum lýsanda.
Nick Diaz verður seint sagður vera mesti aðdáandi UFC eða Dana White. Það verður því að teljast ólíklegt að hann fái starf hjá UFC þegar ferlinum lýkur (ef ferlinum er ekki lokið nú þegar).
Á spjallborðinu má sjá nokkrar skemmtilegar tillögur. Hér eru nokkrar af þeim bestu.
Nick Diaz í starfi Joe Rogan sem lýsandi.
Nick Diaz í starfi Dana White.
Nick Diaz sem myndatökumaður.
Nick Diaz sem „Stitch“ en sá er þekktur fyrir að gera að sárum bardagamanna.
Diaz gæti líka verið dómari.
Diaz gæti aðstoðað við uppsetningu á búrinu.
Hann gæti einnig verið spjaldastúlka (e. ring girl)
Eða spjaldadrengur..
Þráðinn í heild sinni má sjá hér.