Um helgina eru tvö bardagakvöld hjá UFC. Það fyrra fer fram í kvöld þar sem úrslitakvöld The Ultimate Fighter fer fram en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja.
27. sería The Ultimate Fighter (TUF) klárast í kvöld þar sem þeir Stipe Miocic og Daniel Cormier voru þjálfarar. Mike Trizano og Joe Giannetti mætast í úrslitum í léttvigt í kvöld og þeir Jay Cucciniello og Brad Katona í úrslitum í fjaðurvigt. Í aðalbardaga kvöldsins fáum við svo frábæran bardaga í millivigt á milli Brad Tavares og Israel Adesanya. Á morgun, laugardag, fer svo UFC 226 fram þar sem þeir Miocic og Cormier mætast í aðalbardaga kvöldsins.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 2)
Millivigt: Brad Tavares gegn Israel Adesanya
Léttvigt: Mike Trizano gegn Joe Giannetti
Fjaðurvigt: Jay Cucciniello gegn Brad Katona
Fjaðurvigt: Alex Caceres gegn Martin Bravo
Fluguvigt kvenna: Roxanne Modafferi gegn Barb Honchak
Hentivigt (190 pund): Alessio Di Chirico gegn Julian Marquez
Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast á miðnætt)
Fluguvigt kvenna: Montana De La Rosa gegn Rachael Ostovich
Léttvigt: Luis Peña gegn Richie Smullen
Léttvigt: John Gunther gegn Allan Zuñiga
Fjaðurvigt: Tyler Diamond gegn Bryce Mitchell
UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast kl. 23)
Fjaðurvigt: Matt Bessette gegn Steven Peterson
Millivigt: Gerald Meerschaertgegn Oskar Piechota