Í kvöld fer fram UFC kvöld í Auckland á Nýja-Sjálandi. Þar verður þungavigtin í aðalhlutverki en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja í kvöld.
Þrátt fyrir að bardagarnir fari fram á Nýja-Sjálandi fer þetta allt fram á bandarískum tíma. Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 23 á okkar tíma og aðalhluti bardagakvöldsins kl 2. Bardagarnir eru því að byrja kl 11 á sunnudagsmorgni á Nýja-Sjálandi.
Hér má sjá hvaða bardagar eru á dagskrá í kvöld.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl 2)
Þungavigt: Derrick Lewis gegn Mark Hunt
Millivigt: Derek Brunson gegn Dan Kelly
Léttvigt: Dan Hooker gegn Ross Pearson
Léttþungavigt: Ion Cutelaba gegn Henrique da Silva
Fluguvigt: Tim Elliott gegn Ben Nguyen
Fjaðurvigt: Alexander Volkanovski gegn Mizuto Hirota
Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast á miðnætti)
Léttvigt: Damien Brown gegn Vinc Pichel
Fluguvigt: John Moraga gegn Ashkan Mokhtarian
Veltivigt: Luke Jumeau gegn Dominique Steele
Veltivigt: Kiichi Kunimoto gegn Zak Ottow
UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast kl 23)
Hentivigt (118 pund): JJ Aldrich gegn Chan-Mi Jeon
Léttvigt: Thibault Gouti gegn Dong Hyun Kim