UFC er með annað bardagakvöld í Jacksonville í kvöld. Anthony Smith mætir Glover Teixeira í aðalbardaga kvöldsins en hér má sjá hvenær bardagarnir byrja.
Það er ekki algengt að sjá UFC með bardagakvöld í miðri viku. Fyrsta bardagakvöld UFC eftir nokkurra vikna hlé var um síðustu helgi og ætlar UFC að fara aftur af stað með krafti.
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl. 22:00 en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl. 1:00. Alla bardagana er hægt að sjá á Fight Pass rás UFC en hér má sjá dagskrá kvöldsins.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 1:00)
Léttþungavigt: Anthony Smith gegn Glover Teixeira
Þungavigt: Ben Rothwell gegn Ovince Saint Preux
Léttvigt: Alexander Hernandez gegn Drew Dober
Bantamvigt: Ricky Simon gegn Ray Borg
Hentivigt (187,5 pund*): Karl Roberson gegn Marvin Vettori
ESPN+ upphitunarbardagar (hefjast kl. 22:00)
Þungavigt: Andrei Arlovski gegn Philipe Lins
Léttvigt: Michael Johnson gegn Thiago Moisés
Bantamvigt kvenna: Sijara Eubanks gegn Sarah Moras
Léttvigt: Gabriel Benítez gegn Omar Antonio Morales Ferrer
Fjaðurvigt: Hunter Azure gegn Brian Kelleher
Þungavigt: Chase Sherman gegn Isaac Villanueva
*Karl Roberson náði ekki vigt.