HomeErlentJenkins á gjörgæsludeild eftir bardagann gegn Santos á UFC 312

Jenkins á gjörgæsludeild eftir bardagann gegn Santos á UFC 312

Jack Jenkins mætti Gabriel Santos síðustu helgi á UFC 312 og neyddist Jenkins til þess að tappa þegar Santos náði honum í rear naked choke í 3. lotu en Jenkins átti eftir að þurfa að leggjast inná gjörgæsludeild eftir bardagann.

Jack Jenkins byrjaði bardagann gegn Santos vel og tók líklega 1. lotu en lenti í vandræðum þegar leið á. Australian MMA greindu frá því fyrstir að Jenkins hafi farið á spítala til skoðunar eftir bardagann en var útskrifaður og sendur heim. Seinna þurfti að leggja hann aftur inn þegar kom í ljós brjóskbrot í skjaldkirtli hans við frekari skoðun og leiddi það til loftsleka út í bringu hans og háls. Jenkins var haldið undir umsjón lækna yfir helgina en var svo útskrifaður af gjörgæsludeild á mánudaginn.

Jenkins og þjálfarar hans telja hann hafa orðið fyrir meiðslunum undir lok 1. lotu í bardaganum en Jack sagði við hornið sitt eftir lotuna að hann væri dofinn í vinstri handleggnum og hafa misst styrk í hendinni.

Þessi meiðsli hafa klárlega sett strik í reikninginn en Jenkins átti rosalega góða 1. lotu og sparkaði Santos m.a.s. niður með hásparki í höfuðið en Santos tók algjörlega yfir bardagann í 2. lotu og kláraði hann í þeirri þriðju.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið