UFC 189 er að breytast í stórslys. Fyrir skömmu bárust þær fréttir að John Hathaway væri meiddur og berst ekki gegn Gunnari Nelson á UFC 189. Nú segir sagan að Aldo hafi brákað rifbein og muni ekki keppa á UFC 189!
Engar staðfestar fréttir hafa borist frá UFC en Ana Hissa, blaðamaður í Brasilíu, heldur þessu fram. Meiðslin eiga að hafa átt sér stað á æfingu í morgun, þriðjudag.
According to @AnaHissa (a very good reporter), Jose Aldo has suffered a fractured rib in training. No word on what this means for the fight.
— Luke Thomas (@SBNLukeThomas) June 23, 2015
Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir UFC ef satt reynist. Jose Aldo og Conor McGregor eiga að mætast um fjaðurvigtartitilinn þann 11. júlí.
Við ítrekum, þetta er aðeins orðrómur og hefur UFC ekki staðfest neitt varðandi meiðslin.
Ef þetta er satt þá er ég miður mín. Er búinn að vera að bíða eftir þessu cardi svo lengi.
Ef þetta er satt þá er ég miður mín. Er búinn að vera að bíða eftir þessu cardi svo lengi.