John Hathaway er meiddur og hefur dregið sig úr bardaganum gegn Gunnari Nelson þann 11. júlí á UFC 189. Gunnar Nelson er sem stendur án andstæðings en UFC mun reyna að finna andstæðing fyrir hann á næstu dögum.
Þetta eru afar leiðinlegar fréttir fyrir Hathaway og okkar mann enda var mikil tilhlökkun fyrir bardaganum. Hathaway hefur ekki barist í 16 mánuði og þarf að bíða enn lengur.
Þetta er í fjórða sinn sem Gunnar missir upprunalega andstæðing sinn í UFC vegna meiðsla. Enn sem komið er ekki búið að finna staðgengil fyrir Gunnar.
Erick Silva gæti verið laus en hann átti að berjast á bardagakvöldinu nú um helgina gegn Rick Story en vegna vandamála með vegabréfsáritun var bardaginn af borðinu. Erick Silva gæti fengið vegabréfsáritun í tæka tíð fyrir UFC 189.
Eðlilega eru ekki margir kostir í stöðunni þar sem afar stutt er í bardagann. Við munum flytja ykkur nánari fréttir af hugsanlegum andstæðingum síðar í kvöld.
- Tappvarpið #141: Frábær sigur Gunnars og UFC 286 uppgjör - March 22, 2023
- Gunnar með flest uppgjafartök í sögu veltivigtarinnar - March 19, 2023
- Gunnar Nelson með sigur í 1. lotu - March 18, 2023