Léttvigtarmeistarinn Justin Gaethje varði WSOF beltið sitt í gær þegar hann sigraði Brian Foster eftir tæknilegt rothögg. Þetta var 16. sigur Gaethje á ferlinum en hann er enn ósigraður á ferlinum.
Það tók Gaethje aðeins 1:43 að klára Brian Foster með lágspörkum. Í níu bardögum í WSOF hefur Gaethje klárað átta þeirra með rothöggi en þetta er í þriðja sinn sem hann sigar eftir tæknilegt rothögg með lágspörkum.