Khabib Nurmagomedov hefur enn einu sinni þurft að draga sig út úr áætluðum bardaga. Nurmagomedov átti að mæta Tony Ferguson í desember en nú þarf UFC að finna nýjan andstæðing fyrir Ferguson.
Bardaginn átti að vera næstsíðasti bardagi kvöldsins á úrslitakvöldi TUF Finale í desember. Talið er að UFC muni reyna að fá Edson Barboza til að fylla í skarð Nurmagomedov.
Nurmagomedov hefur ekkert barist síðan í apríl 2014 er hann sigraði núverandi meistara Rafael dos Anjos. Þetta er í þriðja sinn sem hann dregur sig úr áætluðum bardaga. Hin tvö skiptin voru vegna hnémeiðsla en í þetta sinn braut hann rifbein.
Rússinn Nurmagomedov æfir að öllu jöfnu hjá American Kickboxing Academy í Bandaríkjunum ásamt köppum eins og Cain Velasquez, Daniel Cormier og Tony Ferguson. Þegar meiðslin áttu sér stað var hann hins vegar við æfingar í heimalandinu samkvæmt Ariel Helwani.
And before anyone jumps to conclusions, Nurmagomedov was in Russia when he got hurt, I’m told, not AKA. He was scheduled to go to SJ nxt wk.
— Ariel Helwani (@arielhelwani) October 30, 2015
Bardagakvöldið er eitt af þremur bardagakvöldum sem verður haldið í Las Vegas á dögunum 10-12. desember. Á miðvikudaginn bárust þær fregnir að Joanne Calderwood sé meidd og geti ekki barist gegn Paige VanZant þann 10. desember.
UFC hefur þurft að gera 39 breytingar á aðalbardögum eða næstsíðastu bardögum kvöldsins á þessu ári.