Loksins er búið að gefa út seinni viðureignina milli Hrafns og Will Bean út á YouTube.
Þeir sem fylgdust með MMA senunni undir lok síðasta árs fréttu líklega af endurleik Hrafns Þráinssonar gegn Will Bean, betur þekktur sem Baunin. Hrafn og Will Bean börðust í tvígang á síðasta ári og enduðu báðir bardagarnir með No Contest. Núna er búið að gefa út seinni viðureignina þeirra út á youtube og getur hver dæmt fyrir sig hvort að Hrafn hafi ekki verið að vinna bardagann áður en augnpotið átti sér stað og hvort að potið hafi mögulega verið viljaverk.