Slagsmál brutust út á milli Jorge Masvidal og liðsfélaga Nate Diaz á blaðamannafundi í Anaheim, Kaliforníu í gær. Diaz neitaði að taka þátt í face-off gegn Masvidal sem leiddi til uppákomunnar.
Diaz sagðist vera kominn með nóg af þessum blaðamannafundum og þetta væri sá síðasti í aðdraganda bardaga þeirra sem verður 6. júlí. Diaz lét það duga að flexa byssunum einn fyrir myndavélarnar og sagði svo við Masivdal: “Square up with yourself, motherfucker”.
Masvidal tók því ekki vel og labbaði á eftir honum. Liðsfélagar Diaz fóru á milli og menn byrjuðu að ýta í hvorn annan þar til alvöru högg voru látin dynja.
Sjón er sögu ríkari: