Þær Lina Lansberg og Lucie Padilova börðust í fyrsta bardaga kvöldsins á laugardaginn. Óhætt er að segja að Lansberg hafi verið illa bólgin eftir bardagann.
Lina Landsberg fór með sigur af hólmi gegn Lucie Padilova á UFC bardagakvöldinu á laugardaginn. Bardaginn var mjög harður og fékk Lansberg nokkra þunga olnboga frá þeirri tékknesku.
Lansberg er þó grjóthörð og stóð allt af sér og sigraði eftir dómaraákvörðun. Það var þó ekki að sjá á henni eftir bardagann að hún hefði unnið bardagann.
Hún var þó brött eftir bardagann og sagðist vera í fínu lagi, þurfti enga sauma og verður komin aftur á fullt eftir þrjár vikur.
I’m totally fine. The ? was just for fun! Nothing’s broken and I didn’t need stitches. I’ll be back in sparring in three weeks! ??❤
— Lina Länsberg (@linalansberg) March 19, 2017
Hér að neðan má sjá myndina af henni með Reza Madadi sem tapaði fyrir Joe Duffy sama kvöld.