Paul Felder tapaði fyrir Francisco Trinaldo á laugardaginn. Óhætt er að segja að Felder muni yfirgefa Brasilíu með smá skurð.
Bardagi Felder og Trinaldo fór fram á UFC bardagakvöldinu í Brasilíu á laugardaginn. Bardaginn var stöðvaður í 3. lotu eftir að stór skurður hafði myndast á augabrún Felder. Sá bandaríski átti erfitt með að sjá vegna blóðsins og eftir að dómarinn hafði ráðfært sig við lækni var bardaginn stöðvaður réttilega.
Skurðurinn myndaðist eftir olnboga og hnefahögg frá Trinaldo í 2. og 3. lotu. Dana White birti neðangreindar myndir á Instagram hjá sér og er óhætt að segja að bardaginn hafi réttilega verið stöðvaður.