Mark Volkov var ekki lengi að klára bardaga sinn um síðustu helgi í Rússlandi. Það tók Volkov aðeins sjö sekúndur að klára mótherja sinn á Samara MMA Federation: Battle on Volga 3 bardagakvöldinu.
Mark Volkov mætti Akmaldzhon Mamurov um helgina og var búinn að rota hann eftir aðeins sjö sekúndur í 1. lotu.
faceplant
Mark Volkov KOs Akmaldzhon Mamurov in 7 seconds
(WFCA Battle of Volga ) pic.twitter.com/CRbmAlKAbR— Jolassanda (@Jolassanda) March 4, 2018
Þetta var annar atvinnubardagi Volkov en þann fyrri kláraði hann á 28 sekúndum. Kannski er þetta nafn sem við eigum eftir að heyra meira um í framtíðinni.