Velski bardagamaðurinn Brett Johns samdi nýlega við UFC. Þegar hann heyrði af samningsboðinu frá UFC brast hann hreinlega í grát.
Brett Johns er 12-0 í MMA og einn af þeim efnilegustu á Bretlandseyjum. Hann mun berjast við Kwan Ho Kwak á UFC bardagakvöldinu í Beflast þann 19. nóvember.
Umboðsmaður hans póstaði þessu skemmtilega myndbandi er hann tilkynnti honum að hann væri kominn í UFC. Johns hefur lengi unnið að því að komast í UFC og hefur nú loksins náð því.
Johns hefur einfaldlega þurft að búa í bardagaklúbbnum sínum til að geta lifað og sofið á köldum dýnunum. Hann gafst þó aldrei upp og verður gaman að fylgjast með honum í Belfast í nóvember.