Dana White, forseti UFC, var í ítarlegu viðtali við MMA Junkie fyrr í vikunni. Þar fer hann yfir Conor-Floyd bardagann, stöðu Demetrious Johnson, Georges St. Pierre og fleira.
Nokkrir bútar af viðtalinu hafa birst í vikunni. Þar á meðal má nefna þegar Dana sagði að Conor vildi mæta Khabib Nurmagomedov í Rússlandi eftir bardagann gegn Floyd Mayweather.