PFL 13 fór fram í gærkvöldi í Long Island í New York. Það tók Movlid Khaybulaev aðeins 10 sekúndur að klára bardaga sinn í gær.
Dagestaninn Khaybulaev mætti fyrrum UFC bardagamanninum Damon Jackson í gær. Khaybulaev smellhitti með fljúgandi hné eftir aðeins 10 sekúndur og er hann því kominn áfram í fjaðurvigtarmóti PFL. Khaybulaev er 14-0 sem atvinnumaður í MMA en bardagann má sjá hér að neðan.
10 seconds of perfection – the fastest stoppage in PFL history! Movlid Khaybulaev moves to 14-0. Khaybulaev earns 6 points with the 1st Round KO #PFLmma #PFL2 pic.twitter.com/w2bnIsHJH5
— #PFLmma (@ProFightLeague) May 24, 2019