Bellator 178 fór fram í nótt í Connecticut í Bandaríkjunum í gær. Ungstirnið A.J. McKee átti þar tilþrif kvöldsins.
A.J. McKee er núna 8-0 á atvinnumannaferlinum eftir glæsilegan sigur í gær. Þessi 22 ára strákur hefur verið að fá erfiðari og erfiðari andstæðinga í Bellator en andstæðingur hans í gær, Dominic Mazzotta, hafði unnið níu bardaga í röð fram að tapinu í gær.
Það hafði þó ekki mikil áhrif á McKee en strax eftir rúma mínútu í 1. lotu náði McKee þessu glæsilega hásparki. McKee og Íslandsvinurinn James Gallagher hafa átt í orðaskiptum á samfélagsmiðlum undanfarna mánuði og látið nokkur vel valin orð falla um hvorn annan.
Í aðalbardaga kvöldsins mættust þeir Patricio Freire og Daniel Straus í fjórða sinn. Þetta var titilbardagi í fjaðurvigt Bellator og endurheimti Freire beltið sem hann tapaði til Straus árið 2015 eftir sigur með „guillotine“ hengingu í 2. lotu.