Nýjasta sería The Ultimate Fighter hefst í kvöld. Í seríunni keppa 14 bardagamenn sem áður hafa verið í TUF en þar á meðal er Julian Lane.
Julian Lane er þekktastur fyrir eitt frægasta atvik í sögu þáttanna. Lane datt snemma úr leik í 16. seríu en eins og flestir þátttakendur þurfti hann að dvelja í húsinu þar til upptökur á þættinum kláruðust.
Lane leyddist ákaflega mikið og langaði helst að slást í húsinu í von um að verða rekinn heim. Lane fékk sér aðeins of mikið í tána eitt kvöldið og grátbað aðra um að leyfa sér bara að slást eða „Let me bang bro“ í vonu um að vera sendur heim.
Hér rifjar Lane upp þetta vandræðalega atvik sem hlaut mikla athygli.