Khabib Nurmagomedov mætir Tony Ferguson á laugardaginn á UFC 209. Khabib þreytti frumraun sína í kvikmyndagagnrýni á dögunum og var ekki hrifinn af rómantískum gamanmyndum.
Rússinn Khabib Nurmagomedov tók saman í stuttu máli myndir á borð við When Harry met Sally, Love Actually og Never been kissed. Khabib hefur sennilega ekki séð þessar myndir en gat sagt eitthvað um myndina út frá heiti þeirra.
We asked @ufc titan Khabib Nurmagomedov to break down the plots of popular romantic comedies. Not sure what we expected… #UFC209 #sponsored pic.twitter.com/Xm3j9pye3L
— theCHIVE (@theCHIVE) February 27, 2017