Það var hiti í mönnum í vigtuninni á Extreme Fighting Championship 52 í Suður-Afríku á dögunum. Brasilíumaðurinn Jadyson Costa reyndi þá ansi misheppnaða fellu á andstæðing sinn.
Jadyson Costa náði ekki að taka Don Madge niður í vigtuninni og gekk ekki heldur vel í bardaganum enda tapaði hann í 1. lotu eftir tæknilgt rothögg.
Það er svo sem erfitt að ná einhverjum niður þegar nokkrir aðilar reyna að stoppa þig en þetta misheppnaðist algjörlega hjá Costa. Hann fær samt hrós í kladdann fyrir að hugsa út fyrir kassann.