UFC hélt opna æfingu fyrir aðdáendur í dag í Madison Square Garden. Conor McGregor tók bolta í hönd og hitti ofan í körfuna á heimavelli New York Knicks.
UFC 205 fer fram á laugardaginn og eru þrír titilbardagar á dagskrá. Bardagamennirnir sem keppa í titilbardögunum tóku þátt á opnu æfingunni og var mikil stemning meðal áhorfenda.
Hér má sjá Conor taka skotið í körfuna.
Æfingu Conor McGregor í heild sinni má svo sjá hér:
Á morgun fer svo blaðamannafundurinn fram en hann hefst kl átta annað kvöld.