Sunna Rannveig Davíðsdóttir sigraði Kelly D’Angelo á Invicta kvöldinu á laugardaginn. Hér fara þau T.J. De Santis og Julie Kedzie yfir bardagakvöldið síðastliðinn laugardag.
Sunna Rannveig átti frábæra frammistöðu er hún sigraði Kelly D’Angelo eftir dómaraákvörðun. Sunna er núna 3-0 á atvinnuferlinum og hafa allir sigrar hennar komið í Invicta.
Síðar um kvöldið sigraði Jinh Yu Frey Ashley Cummins í atómvigt kvenna en Jinh dvaldi hér á landi um tíma til að undirbúa sig fyrir bardagann.
Hér fara þau Kedzie og De Santis yfir bardagana en þau lýstu bardagakvöldinu á Fight Pass rás UFC.