Slysin gerast stundum í MMA og átti eitt slíkt sér stað í Road FC í Suður-Kóreu í dag. Eftir aðeins nokkrar sekúndur þurfti að stoppa bardaga vegna pungsparks.
Þeir Aorigele og Hyun Man Myung mættust í ofurþungavigt í dag. Bardaginn entist þó aðeins í tíu sekúndur þar sem Hyun Man Myung sparkaði í klof Aorigele. Aorigele lagðist strax niður og gat ómögulega haldið áfram að keppa enda greinilega sárkvalinn.
damn, the second of the most promising fights ended in 20 s!
Aorigele is seriously injured – no contest pic.twitter.com/i3atL2NS0O— Jolassanda (@Jolassanda) June 10, 2017
Bardaginn var dæmdur ógildur en Myang ætlaði að sparka í innanvert læri Aorigele en hitti ekki alveg á réttan stað. Aorigele var fluttur upp á spítala eftir atvikið en punghlýfin sem hann bar brotnaði við höggið. Myang sá mikið eftir sparkinu og heimsótti Aorigele á spítalann þar sem hann baðst afsökunar á sparkinu.