Birgir Örn Tómasson vann sinn fyrsta atvinnubardaga nú um helgina. Birgir rotaði andstæðing sinn í fyrstu lotu en hér má sjá brot úr bardaganum.
Bardaginn fór fram á Shinobi 10 bardagakvöldinu í Liverpool á laugardaginn. Birgir mætti Anthony O’Connor og eftir um það bil tvær mínútur hafði Birgir rotað O’Connor.
Hér má sjá rothöggið hjá Birgi.