Í kvöld mætast þeir Dan Henderson og Michael Bisping um millivigtartitil UFC. Af því tilefni birtum við hér fyrri bardaga þeirra er þeir mættust á UFC 100 árið 2009.
Sigurvegarinn átti að fá næsta titilbardaga í millivigtinni gegn Anderson Silva. Þetta var hins vegar síðasti bardaginn á núgildandi samningi Henderson og fór hann yfir í Strikeforce. Ekkert varð því úr titilbardaga Henderson á þeim tíma en rothöggið hér að neðan engu að síður eftirminnilegt.
https://www.youtube.com/watch?v=lWCsSTQFIA8